Málnefnd um íslenskt táknmál – ráðgjöf við stjórnvöld, efling ÍTM og notkun í íslensku þjóðlífi

Skipun nefndar

Ráðherra skipar Málnefnd um íslenskt táknmál til fjögurra ára í senn í samræmi við 7. gr. laga nr. 61/2011 um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls. Við skipun nefndarinnar skal haft samráð við Hugvísindasvið Háskóla Íslands, Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, hagsmunasamtök heyrnarlausra og heyrnarskerta hér á landi og Samband íslenskra sveitarfélaga. Ráðherra velur formann og varaformann.

Málnefnd um íslenska táknmálið er þannig skipuð, tímabilið 2024-2028:

  • Valgerður Stefánsdóttir formaður án tilnefningar
  • Berglind Stefánsdóttir varaformaður án tilnefningar
  • Uldis Ozols, tilnefndur af Félagi heyrnarlausra
  • Rannveig Sverrisdóttir, tilnefnd af Hugvísindasvið Háskóla Íslands
  • Júlía G. Hreinsdóttir, tilnefnd af Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra
  • Selma Kaldalóns Sigvaldadóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Varamenn:

  • Unnur Pétursdóttir, tilnefnd af Félagi heyrnarlausra
  • Jóhannes Gísli Jónsson, tilnefndur af Hugvísindasvið Háskóla Íslands
  • Árni Ingi Jóhannesson, tilnefndur af Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra
  • Anna Kristín Óladóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Skrifstofa málnefndar um íslenskt táknmál er í Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.