Málnefnd um íslenskt táknmál – ráðgjöf við stjórnvöld, efling ÍTM og notkun í íslensku þjóðlífi

Hlutverk og starfsemi

Hlutverk málnefndar um íslenskt táknmál er skilgreint í lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls, nr. 61 frá 7. júní 2011.

Hlutverk málnefndar um íslenskt táknmál er að stuðla að eflingu íslensks táknmáls, notkun þess í íslensku þjóðlífi, styrkja stöðu þess og virðingu og beita sér fyrir aðgerðum til varðveislu þess.

Málnefnd um íslenskt táknmál er ætlað að vera stjórnvöldum til ráðuneytis um hvað eina er varðar íslenskt táknmál, til að mynda skal leita umsagnar málnefndarinnar áður en settar eru reglugerðir eða annars konar fyrirmæli um íslenskt táknmál að svo miklu leyti sem einstök atriði heyra ekki undir aðra samkvæmt öðrum lögum. Um málstefnu og stöðu íslensks táknmáls skal leitað samvinnu við málnefnd um íslenskt táknmál, sbr. 7. gr. laga nr. 61/2011.

Ráðherra setur reglugerð um nánari starfsemi málnefndar um íslenskt táknmál.

Málnefnd um íslenskt táknmál hefur frá upphafi haft samstarf við Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, Félag heyrnarlausra, Rannsóknastofu í táknmálsfræðum.

Málnefndin er einnig í samvinnu við systurnefndir sínar á Norðurlöndum, en það tengslanet starfar undir Norrænu ráðherranefndinni.