Málnefnd um íslenskt táknmál – ráðgjöf við stjórnvöld, efling ÍTM og notkun í íslensku þjóðlífi

Saga dagsins

Ákveðið var á fundi Málnefndar um íslenskt táknmál að afmælisdagur Félags heyrnarlausra 11. febrúar yrði Dagur íslensks táknmáls. Deginum er ætlað að vekja athygli á íslensku táknmáli, fagna því og gera það sýnilegt. Dagurinn var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn mánudaginn 11. febrúar árið 2013 með málþingi um málumhverfi heyrnarlausra barna á Íslandi. Þingið var haldið í Háskóla Íslands og hófst kl. 15:00. Hátíðahöld í tilefni dagsins hafa verið með ýmsu móti og með mismunandi áherslum. Dagurinn er fyrst og fremst hátíðisdagur og hefur til dæmis verið tileinkaður málinu, menningunni, listum og orðræðunni.