Málnefnd um íslenskt táknmál – ráðgjöf við stjórnvöld, efling ÍTM og notkun í íslensku þjóðlífi

Íslenskt táknmál

Íslenskt táknmál er eitt af táknmálum heimsins en táknmál eru sjálfsprottin mál sem verða til í samskiptum döff fólks. Á annað hundrað táknmál eru skráð á Ethnologue, sem heldur skrá yfir tungumál heimsins. Íslenska táknmálið er eina hefðbundna minnihlutamálið hér á landi og um 300 manns líta á það sem sitt móðurmál. Miklu fleiri nota þó íslenskt táknmál í daglegu lífi svo sem fjölskyldur döff fólks, starfsfólk sem vinnur í táknmálssamfélaginu, vinir og vandamenn. Táknmál eru mynduð með höndum, andliti og líkama, í afmörkuðu táknrými fyrir framan líkamann og eru skynjuð í gegnum sjónina. Táknmál eru að uppbyggingu sambærileg tungumálum sem tjáð eru með rödd og fylgja reglum er varðar t.d. orðaröð, orðmyndun, leyfileg tilbrigði o.s.frv. Tákn eru sambærilegar einingar og orð og eru á sama hátt mynduð úr smærri einingum sem hver um sig getur breytt merkingu. Tákn raða sér saman í setningar eftir ákveðnum reglum en málfræðin liggur mest í rýminu, andliti og líkama. Til dæmis er setningagerð sýnd með látbrigðum í andliti eða á höfði, hvort um er að ræða spurningu, neitun eða aðra gerð setningar. Í málfræði ÍTM gilda ákveðnar reglur um skipan tákna í setningar, beygingar tákna, myndun tákna og merkingu.

Döff fólk og margt heyrnarskert fólk notar táknmál í daglegu lífi og notfærir sér þjónustu táknmálstúlka til samskipta við þá sem ekki kunna íslenskt táknmál. Í lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls nr. 61/2011 segir í 13. gr. að íslenskt táknmál sé jafnrétthátt íslensku sem tjáningarform í samskiptum manna í milli og óheimilt sé að mismuna mönnum eftir því hvort málið þeir nota.

Á netinu má finna táknmálsbanka og þekkingarbrunn fyrir íslenska táknmálið SignWiki. Þar er hægt að leita að stökum táknum en einnig er þar að finna kennslu- og fræðsluefni af ýmsu tagi.