Í 7. gr. laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls þar sem fjallað er um hlutverk Málnefndar um íslenskt táknmál segir að hún eigi að vera stjórnvöldum til ráðuneytis um hvað eina er varðar íslenskt táknmál og stuðla að eflingu íslensks táknmáls og notkun þess í íslensku þjóðlífi. Í krafti þessa hefur Málnefndin sent bréf til ráðuneyta og stofnana þegar ekki er fylgt því regluverki sem smíðað hefur verið um íslenskt táknmál og bent á að hægt sé að fá ráðgjöf um málefni íslensks táknmáls hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra og Málnefnd um íslenskt táknmál.
Ekki er kveðið á um það í lögunum hvað nefndin á til bragðs að taka ef fyrirtæki eða stofnanir bæta ekki ráð sitt og engin sektarákvæði eru til staðar.